Sólberg Sameignir sér um daglega fasteignaumsjón hjá stórum húsfélögum, eftirlit og framkvæmd verkefna í sameign ásamt samskiptum við íbúa svo stjórnarfólk húsfélaga þurfi ekki að fórna frítíma sínum í húsfélagið.
Við aðlögum okkur að þörf hvers húsfélags fyrir sig, við bjóðum upp á að annast öll samskipti við íbúa og aðra þjónustuaðila húsfélagsins, t.d þrifafyrirtæki.
Einnig aðstoðum við stjórn með fundargerðir, tilboðsgerð og aðra ráðgjöf vegna stjórnarstarfa.
Umsjónarkerfið okkar er hannað með því að markmiði að áreiti og álag á stjórnarfólk sé í lágmarki.
Íbúar geta sent þjónustubeiðni óski þeir eftir viðgerðum eða annarskonar þjónustu í sameigninni, eins bjóðum við íbúum húsfélaga í þjónustu hjá okkur upp á ýmiskonar þjónustu í íbúðum þeirra.
Má þar nefna viðgerðir, uppsetningu á nýjum munum eða búnaði, flutningur og burð, fjarlægja rusl ásamt tölvu og tækniþjónustu. Sjónvarp, net, snjalltæki og frágang lagna.